Tekið er á vandamálum í sambandi við einelti eða ofbeldi í nánu samstarfi við forráðamenn.
1. Með fyrirmynd kennara og starfsfólks skólans.
2. Með inngripi í umhverfi, aðstæður og félagsleg samskipti einstaklinga og hópsins sem um ræðir.
3. Með viðtölum og beinum leiðbeiningum við gerendur og þolendur og forráðamenn.
Samvinna heimilis og skóla er lykillinn að árangri í glímunni við einelti og ofbeldi í skólastarfi. Við biðjum forráðamenn að upplýsa starfsfólk skólans um jafnt lítil sem stór vandamál er nemandi á í erfiðleikum félagslega í skólanum. Ef upp kemur eineltismál vinna kennarar einstaklingsbundna eineltisáætlun fyrir hvert mál, þar er bekkjarkennarinn fulltrúi nemandans. Kennarar og starfsfólk skólans vinna með félagsmótun bekkja og forvarnir til þess að koma í veg fyrir einelti og ofbeldi. Forvarnarstarf er framkvæmt af hverjum bekkjarkennara fyrir sig með því að byggja upp jákvæð tengsl og í gegnum félagsmótun og námsefni. Einnig eru alltaf starfsmenn úti í frímínútunum til að fylgjast með, vera styðjandi og stinga upp á og koma af stað hópleikjum. Komi upp eineltismál er stuðst við eineltisáætlun skólans og leitað leiða til að leysa málið á sem farsælastan hátt.
Áætlun Waldorfskólans Sólstafa er að finna hér: Áætlun gegn einelti og ofbeldi Waldorfskólinn Sólstafir
Verklagsreglur Skóla- og frístundasviðs Reykjarvíkur má nálgast hér: verklagsreglur32012_0
Upplýsingar um aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna vegna kynbundins og kynferðislegs ofbeldis má finna á síðu sambands íslenskra sveitarfélaga.