Kennarar og starfsfólk skólans hafa undanfarin 10 ár sótt símenntunarnámskeið í Osló að sumri, sem haldið er af norsku Waldorfkennarasamtökunum. Á námskeiðinu er unnið markvisst að uppbyggingu námsins ásamt reyndum kennurum. Skólinn hefur einnig staðið að eigin símenntunardögum að hausti, þar sem reynsla sú er fengist hefur hér heima er nýtt til fræðslu. Sólstafir eru einnig með símenntunardaga í febrúar þar sem erlendir gestir skólans hafa boðið starfsfólki upp á spennandi viðfangsefni út frá hugmyndafræði Waldorfstefnunnar.
Kennurum skólans hefur verið gert kleift að stunda meistaranám í Waldorf uppeldis- og kennslufræði í fjarnámi frá Waldorfkennaraháskólanum í Osló og hafa nú þegar 2 kennarar skólans útskrifast úr því námi og einn kennari er sem stendur í Waldorf-kennaranámi hjá Waldorfkennaraháskólanum í Bromma í Stokkhólmi ásamt stjórnunarnámi menntastofnanna hjá menntavísindasvið Háskóla Íslands sem stendur. Umsjónakennari á yngsta stigi stundar nú fjarnám við The Rudolf Steiner Centre í Toronto samhliða kennsluréttindanámi við Listaháskóla Íslands.
Símenntunaráætlun Waldorfskólans fyrir skólaárið 2016-2017 miðar að því, eins og undanfarin ár, að kennarar vinna þróunarvinnu í sambandi við skólanámsskrá og námsmat skólans og fari á árleg símenntunarnámskeið auk þess sem hver kennari skoðar þau námskeið sem eru í boði á þeirra sviði.
Hér er hægt að nálgast símenntunaráætlunina: Símenntunaráætlun 2020-2021.