Nú er samvinnudagur foreldrafélagsins framundan og hvetjum við sem flesta til að koma og hjálpa til við að fegra og gera við ýmislegt smálegt hér i skólanum á laugardaginn kemur, þann 5. sept..
Vinnudagurinn er frá kl 10:00 til 15:00 og mun stjórn félagsins auglýsa daginn betur á kynningarfundi foreldrafélagsins á morgun, fimmtudaginn 3. september kl 16:30. Fundurinn verður haldinn á efri hæð skólans.
Hér eru t.d. nokkur verkefni vinnudags :
Gera við eldofn skólans. (þau sem treysta sér í verkið hafi samband við skólann, )
Smíða tvö einföld vegasölt fyrir yngsta stig.
Setja upp nýa körfuboltakörfu
Færa fótboltamarkið
Snyrta blómabeð og setja niður lauka
Slá gras og snyrta lóð, dytta að leiktækjum
Þvo glugga og hurðir





