Kæru nemendur, foreldrar og fjölskyldur Waldorfskólans Sólstafa
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á skólasetninguna sem verður að þessu sinni þann 24. ágúst nk. hér í Sóltúninu, kl 13.00.
Við hefjum skólasetninguna utandyra að venju, bjóðum nýja nemendur, kennara og starfsfólk velkomið og síðan taka bekkjarkennarar á móti sínum hópum í heimastofum á eftir.
Skólasetningu lýkur um kl 14:00 og hefst kennsla skv. stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.
Stundatöflur bekkja verða aðgengilegar á heimasíðu skólans þann 21. ágúst.
Við kennarar og starfsfólk skólans hlökkum til að hitta ykkur öll og hefja nýtt skólaár!






