Umsóknarferli og innritunarreglur
Waldorfskólinn Sólstafir er opinn öllum börnum á aldrinum 6-16 ára.
Innritunarteymi skólans er skipað bekkjarkennara, stjórnendateymi auk deildarstjóra sérkennslu.
Umsóknarferli um námsvist við skólann er eftirfarandi:
Forráðamenn hafa samband við skólann á netfangi skólans solstafir@waldorf.is og merkja póstinn fyrirspurn um skólavist.
- Sé laust pláss í viðkomandi bekkjarárgangi er forráðamönnum og nemanda boðið í umsóknarviðtal í skólann.
- Í umsóknarviðtali er skólastefnan, helstu áherslur í kennslu og uppeldisfræðinni,starf skólans og foreldrasamstarf kynnt og fengið leyfi til að afla upplýsinga frá fyrri skóla/leikskóla.
- Ennfremur er lagt mat á þörf fyrir sértæka þjónustu, sé sú þörf fyrir hendi.
- Í kjölfar þess er umsókn metin af innritunarteymi út frá inntökuskilyrðum og síðan lögð fyrir kennarafund.
- Kennarafundur tekur ákvörðun um samþykki eða synjun umsóknar á grundvelli mats innritunarteymis.
- Sé umsókn samþykkt fá forráðamenn tölvupóst frá skólanum um það.
- Forráðamenn geta þá sótt um skólaskipti inni á nemendagrunni Frigg gegnum mínar síður á island.is
- Mælt er með að barn hefji skólagöngu við upphaf haust eða vorannar, nema um annað sé samið.
- Sé lagt til að umsókn verði hafnað tilkynnir skólastjórnandi það í tölvupósti til forráðamanna þar sem fyrirhuguð synjun er rökstudd. Gefa skal forráðamönnum kost á að tjá sig um fyrirhugaða synjun og þau upplýst um kærurétt sinn skv. 47.gr.grunnskólalaga.
Innritunarreglur
Innritun nemanda er háð eftirfarandi skilyrðum:
– hvort laust pláss sé í þeim árgangi sem sótt er um í skólanum.
– hvort innritunarteymi meti álag í bekknum viðunandi fyrir velferð viðkomandi umsækjanda.
– að skólinn sjái sér fært að uppfylla skyldur sínar gagnvart þörfum barnsins
og geti veitt þá námslegu og félagslegu þjónustu sem viðkomandi þarfnast.
Skólinn fer fram á leyfi foreldra til að fá umsögn um námslega -og félagslega stöðu og líðan frá fyrri skóla/leikskóla.
Skólinn fer fram á upplýsingar um greiningargögn ef fyrirliggjandi eru.
Skólinn mælist til þess að forráðamenn sem sækja um skólavist fyrir barn sitt í Waldorfskólanum Sólstöfum kynni sér stefnu skólans vel og fyrirkomulag náms og kennslu.
Mikilvægt er að foreldrar hafi áhuga á skólastefnunni og séu reiðubúnir að starfa með okkur að skapandi og kærleiksríku skólasamfélagi út frá grunngildum Waldorfstefnunnar.
Forráðamenn sækja um skólaskipti inni á nemendagrunni Frigg gegnum mínar síður á island.is þegar umsókn hefur verið samþykkt í skólanum. Hér er slóð á síðuna:

