Ein af hátíðum Waldorfskólans er í dag þann 11. nóvember, Marteinsmessa eða luktarhátíð.
Þá er gaman að segja frá því hver er tilgangur þessarar fallegu hátíðar
í skólastarfinu okkar og í Waldorfskólum um allan heim.
Frá Frakklandi kemur sagan af heilögum Marteini, sem var ungur maður
sem fór í gegnum borgarhlið í borginni Tours og sá þar betlara liggjandi við götuna.
Maðurinn var varla klæddur og honum var ískalt. Þegar Marteinn sá hann tók
hann sverðið sitt og hjó skikkju sína í tvennt og gaf manninum helming hennar.
Næstu nótt dreymdi Martein draum, í draumnum sá hann engil sem var í
eins skikkju og hann hafði gefið af. Eftir þessa upplifun helgaði hann sig velgengi
allra, burtséð frá samfélagslegri stöðu. Marteinn varð dýrlingur þeirra sem
minnst mega sín í þjóðfélaginu, betlara og útigangsmanna, þeirra sem allstaðar er úthýst.
Hann var þekktur fyrir að vera
hógvær, yfirlætislaus og að færa ljós og hlýju til þurfandi fólks.
Við stefnum nú í dimmasta tíma ársins og er þá en mikilvægara að tendra
hlýju og ljós í hjörtum okkar. Við söknum og langar í birtu og yl
sumarsins. Öll upplifum við okkur stundum utanveltu eða hjálparþurfi.
Sagan um skikkju Marteins getur minnt okkur á að stíga fram og deila með þeim sem á þurfa að halda.
Ljósin sem skína blíðlega í luktunum okkar leiða okkur til ljóssins í
aðventugarðinum og áfram til sólstöðu og sýna að okkar innra ljós þarf að skína enn bjartar á móti kuldanum.
Sérstaklega á nú á tímum ættum við að leitast við að deila léttum og hlýjum
tilfinningum, vera styðjandi við hvert annað og sýna umburðarlyndi, jákvæðni og samstöðu.
Í skólastarfinu minnum við okkur á þessa þætti í kringum 11. nóvember og hver bekkur býr til fallegar luktir og
vinnur að sínum markmiðum í því að gefa og styðja.






