Mikjálsmessa er að hausti ár hvert þann 29. september. Að fornu hófst haustvertíð á Suðurnesjum
og Vesturlandi þann dag, en heyskaparlok, fjárleitir og upphaf sláturtíðar bar upp um
svipað leyti. Uppskera er tekin í hús og haustið knýr dyra með veðrabreytingum og litadýrð.
Á Mikjálsmessu halda Waldorfskólar víða um lönd hátíð. Hátíðin er á ýmsan hátt tengd
innblæstri þess siðferðislega hugrekkis sem goðsögnin um baráttu
heilags Georgs við drekann hefur haft á mannsandann í gegnum tíðina.
Á þessum árstíma heldur því allur skólinn af stað í lífsleikninviku sem litast af þessari hátíð og þeim ásetningi að yfirvinna drekann.
Að þessu sinni er lífsleiknivikan næsta vika, 15-18.september.
Skólinn breytist í útiskóla og ferðinni er heitið í grenndarskóg skólans í Öskjuhlíð fjóra skóladaga í röð.
Þar hefst drekaleikurinn sem er eltingaleikur sem stendur yfir alla dagana á skólatíma, og taka allir
nemendur, kennarar og starfsfólk skólans þátt í honum. Ennfremur er unnið að ýmsu handverki útivið, skógurinn grisjaður, sett upp leiksvæði og setið við eldinn.
Föstudaginn 18.september, síðasta dag leiks, er síðan skertur skóladagur, foreldrum er boðið í drekasúpu og brauð í skóginum í hádeginu og að því loknu halda allir heim.






