Nú líður að lokum skólaársins og næstu daga eru skógardagar skólans og munu nemendur fara um víðan völl í margvísleg útinámsverkefni, ratleiki og vettvangsferðir. Ennfremur eru nemendur 10.bekkjar að kynna lokaverkefni sín í skólanum.
Þann 9. júní næstkomandi verða svo skólaslit í Waldorfskólanum Sólstöfum. Að venju fara þau fram í Háteigskirkju og hefst athöfnin kl 14:00.
Eftir athöfnina bjóða útskriftarnemar skólans gestum og gangandi að koma og skoða lokaverkefni sín á efri hæð skólans.







