Miðvikudaginn 19. apríl lýkur skóladeginum kl 12.00 á hádegi vegna útfarar Magdalenu Helgu Óskarsdóttur sem er einn af frumkvöðlum Waldorfstefnunnar á Íslandi og var einn af stofnendum Waldorfskólans Sólstafa. Helga starfaði við skólann frá 1994-2020 og lagði grunn að því mikla skapandi starfi sem fram fer hér í skólanum í dag.
Kennarar og starfsfólk skólans votta fjölskyldu og ástvinum Helgu innilega samúð.
Á jörðinni við stöndum
og sjáðu hér stend ég
Með himinnbogann yfir höfði mér
í hendur haldast vinir.
vísa úr leikskóla Sólstafa