Jonathan Swann, gestakennari frá Englandi verður við kennslu hjá okkur næstu tvær vikurnar og kennir 7-8. bekk geometríu og 8.-9. bekk efnafræði. Hann byrjaði kennaraferil sinn sem almennur grunnskólakennari á 8. áratugnum. Jonathan hefur starfað sem Waldorfkennari frá árinu 1976, í Bretlandi, á Norður-Írlandi, Ástralíu og í Þýskalandi. Hefur hann sérstaklega mikinn áhuga á að kenna unglingastígi eðlisfræði, efnafræði og stærðfræði.