Páskafrí og páskabingó
Við í Waldorfskólanum óskum ykkur gleðilegra páska og viljum jafnframt minna á páskabingó skólans kl 16:00 í dag á efri hæðinni. Skólastarf hefst síðan að nýju þriðjudaginn 7.apríl skv. stundaskrá. ShareTweet0 Shares


Við í Waldorfskólanum óskum ykkur gleðilegra páska og viljum jafnframt minna á páskabingó skólans kl 16:00 í dag á efri hæðinni. Skólastarf hefst síðan að nýju þriðjudaginn 7.apríl skv. stundaskrá. ShareTweet0 Shares
Við viljum benda á að skóladagatal Waldorfskólans Sólstafa fyrir næsta skólaár er komið á heimasíðu skólans. Skóladagatalið er birt með fyrirvara um breytingar þar til það hefur verið samþykkt. Waldorfskólinn Sólstafir skóladagatal 2026-27 ShareTweet0 Shares
Opið hús verður í skólanum í Sóltúni 6, fimmtudaginn 5. febrúar næstkomandi milli kl. 16-17. Foreldrar sem hyggja á skólavist fyrir næsta vetur geta komið og kynnt sér starf skólans og spjallað við kennara. Opna húsið verður á neðri hæð skólans og bjóðum við sérstaklega velkomna foreldra barna sem eru að byrja í 1. bekk…
Event á facebook https://fb.me/e/6lrX6CutK Fjáröflun fyrir 9./10. bekk vegna útskriftarferðarinnar til Lissabon Sýnt verður brúðuleikhúsið: Grimms ævintýrið: „Frú Holle“ Sýningin verður í Waldorfskólanum Sólstöfum, Sóltúni 6, Regnbogadeild ( hús 1 færanlegu stofur) Verð: 1.500 kr. á fjölskyldu (eða meira ef þið viljið styrkja). Til að kanna áhuga biðjum við ykkur um að skrá ykkur í s.867-3434…
Elsti bekkur skólans er að afla fjár fyrir skólaferðalag sitt í vor. Föstudaginn 28. nóvember munu nemendur í 9. og 10. bekk elda pakistanskan kvöldverð og bjóða gestum og gangandi að koma og njóta. Hægt er að panta borð með sms í síma 659-3045 og gefa upp fjölda gesta og hvort hópurinn vill koma kl…
Þann 11. nóvember er Luktarhátíð skólans og munu yngri nemendur og miðstig ganga með luktirnar sínar í morgunsárið og syngja. Venja er að fara að hjúkrunarheimilinu Sóltúni og syngja fyrir íbúa þar nokkur lög. Unglingastig skólans ákvað að styrkja gott málefni í tilefni af Marteinsmessu og safna þau dýradóti og dýrafóðri fyrir Dýrahjálp (fyrir hunda,…
Fimmtudaginn 25. september kl 18:00 – 20:00 verður Waldorfkennarinn Godi Keller með fyrirlestur og umræður hér í skólanum fyrir foreldra og aðra áhugasama. Fyrirlesturinn fer fram á efri hæð skólans. Í fyrirlestrinum mun Godi meðal annars beina sjónum að unglingsárunum og þeim þörfum og áskorunum sem fylgja þeim aldri, auk þess að ræða hugtakið lífshæfni.…
Kæru öll Foreldrafélag skólans ætlar að standa að frábærum vinnudegi hér í skólanum næstkomandi laugardag, 6.september, milli kl. 10-15. Við hvetjum foreldra til að koma og hlúa að og fegra og huga að útisvæði og byggingum. Dagskrá nánar auglýst af foreldrafélagi skólans. ShareTweet0 Shares
Hér er að finna dagskrá skólans yfir hátíðir, skipulagsdaga og aðra sérdaga skólaárið 2025 -2026 Dagskrá skólaársins 2025-26 ShareTweet0 Shares
Skólasetning Waldorfskólans Sólstafa Kæru nemendur, foreldrar og fjölskyldur Waldorfskólans Sólstafa Skólasetning verður þann 21. ágúst nk. hér í Sóltúninu kl 14.00 eftir hádegi. Við ætlum að byrja skólasetninguna utandyra að venju, bjóða nýja nemendur, kennara og starfsfólk velkomið og síðan taka bekkjarkennarar á móti sínum hópum í heimastofum á eftir. Skólasetningu lýkur um…