Laugardaginn 4. mars verður opið hús í Waldorfskólanum Sólstöfum milli kl. 13 – 15, Sóltúni 6.
Áhugasamir geta skoðað nýbyggingu okkar sem verður tekin í notkun á vormánuðum. Skólabyggingin er hönnuð af Sigríði Sigþórsdóttur, hjá Basalt Architects, en hún var sæmd riddarakrossi fálkaorðunnar fyrir framlag sitt til íslenskrar byggingarlistar í janúar síðastliðnum.
Við höfum opnað fyrir innritun nýnema skólaárið 2017-2018. Fyrirspurnir sendist á waldorfskolinn@gmail.com