Þann 28. apríl var vinnudagur foreldra. Á hverju ári taka foreldrar nemenda þátt í að fegra og betrumbæta skólalóðina. Í ár voru ma. tré og runnar færðir til, rusl týnt af skólalóðinni, hellulögn endurbætt, trédrumbar voru settir niður til að búa til leikfleti og völundarhúsið lagað.