Samvinnudagar foreldra á morgun 27. apríl og 11. maí n.k.
Við ætlum að taka höndum saman og lagfæra, fegra og hreinsa til í skólanum og á skólalóðinni núna á næstunni og hvetjum við foreldra að koma og vera með.
Laugardaginn 27. apríl byrjum við kl 10.00 og getur fólk komið þegar hentar og tekið þátt í ýmsum verkefnum. Heitt á könnunni og hægt að koma með nesti með sér.
Foreldrafélagið er síðan með aðalfund kl 15:00 sama dag. Þann 11. maí er svo sameiginlegur samvinnudagur leikskóla og skólans.
Hlökkum til að sjá sem flesta koma og taka þátt!