Opið hús í Waldorfskólanum þann 29.febrúar nk.
Opið hús verður í skólanum þann 29. febrúar nk. frá kl 16.30-17.30 þann dag.
Kennarar verða á staðnum til að svara fyrirspurnum um skólastefnuna og fyrirkomulag kennslu og náms og starf yngstu bekkja skólans verður kynnt.
Foreldrar leikskólabarna sem hyggja á nám í fyrsta bekk næsta haust eru boðnir sérstaklega velkomnir.
Opna húsið verður á neðri hæð grunnskólabyggingarinnar í Sóltúni 6.
Öll hjartanlega velkomin!
Kennarar Waldorfskólans Sólstafa