Sigríður Birna Valsdóttir, fjölskyldu- og leiklistarmeðferðafræðingu og ráðgjafi hjá Samtökunum 78 var með hinseginfræðslu fyrir kennara Waldorfskólans á dögunum. Farið var yfir helstu hugtök sem tengjast hinsegin heiminum, um fjölbreytileika kyns, kynhneigða og kyneinkenna. Áhersla var lögð á trans-börn, hversu fjölbreytilegur hópurinn er og hvernig kennarar geta stutt við skjólstæðinga sína.
Fáni trans fólks
Fáni trans fólks skiptist í fimm rendur, tvær bláar rendur, önnur er efst og hin neðst á fletinum, eina hvíta í miðjunni og tvær bleikar milli hvítu línunnar og beggja bláu línanna. Bláu línurnar vísa til litarins sem er oft látinn tákna drengbörn og sá bleiki til litarins sem er látinn tákna stúlkubörn. Hvíta línan táknar síðan þau sem eru trans, intersex eða tilheyra óskilgreindu eða engu kyni. Fáninn var hannaður af Monicu Helms árið 1999.
Sótt af vefsíðu um tákn hinsegin samfélagsins: https://otila.is/samfelagid/hagsmunabaratta/takn-hinsegin-samfelagsins/