Nemendur í 7. bekk hafa nýlokið tveggja vikna reiðnámskeiði sem er hluti af námsefni þeirra á þessu skólaári. Markmið námskeiðisins er að veita nemendum tækifæri til að upplifa samband mans og hests. Í samskiptum sínum við hesta þurfa nemendur að tileinka sér þolinmæði, rólyndi og sjálfsaga. Nemendur læra að bera traust til skepnunnar og treysta eigin getu í nýjum reynsluheimi.
![IMG_3712](https://waldorf.is/wp-content/uploads/2018/11/IMG_3712-1.jpg)