![](https://waldorf.is/wp-content/uploads/2018/11/IMG_3756-938x704.jpg)
Nemendur í 7. bekk fara á tveggja vikna reiðnámskeið sem hluti af námsefnis Waldorfskólans. Markmið námskeiðsins er að veita nemendum tækifæri til að upplifa samband mans og hests. Í samskiptum sínum við hesta þurfa nemendur að tileinka sér þolinmæði, rólyndi og sjálfsaga. Nemendur læra að bera traust til skepnunnar og treysta eigin getu í nýjum reynsluheimi.