Nú er komið að því að framkvæmdir hefjist við næsta áfanga skólabyggingar í Sóltúni 6.
Í þessari viku munu verktakar hefja vinnu og verður byggingarsvæði lokað af með girðingum og jarðvinna hefjast í næstu viku.
Við bjóðum öllum skóla- og leikskólaforeldrum sem áhuga hafa, að kíkja við í anddyri hjá matsal skólans.
Áætlað er að bygging hússins verði hröð og afhendingartími er næsta sumar þannig að ef allt gengur að óskum hefjum við leik í nýju grunnskólahúsi í haust og getum ennfremur stækkað leikskólann inn í allt leikskólahúsið.
Við biðjum fólk að athuga vel að bílastæði skólans fer að hálfu leyti undir framkvæmdasvæði og verður mikið um jarðvinnuvélar til að byrja með og er jafnvel betra að leggja í Miðtúni þegar komið er, en áfram verður hægt að keyra upp með suðurhlið skólans(að leikskólainngangi).