Kennsluformið

Kennarinn, sem þekkir nemendur vel, metur hvenær og hvernig hann leggur verkefni fyrir nemendur sína, til upplifunar eða úrvinnslu. Waldorf námsskráin miðast fyrst og fremst við að styðja heilbrigðan þroska einstaklingsins. Útkoman úr þessu ferli á að búa einstaklinginn undir að taka þátt í og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Hún miðast ekki fyrst og fremst við útkomu kennslu sem aðeins tekur mið af námsgreinum og fagþekkingu.

Blandaðir bekkir

Þótt kennsluaðferðin geti og ætti að miðast við þarfir einstaklingsins miðast innihald námsskrárinnar við jafnaldrahópa. Þar sem hlutverk félagslegra ferla er einn af úrslitaþáttum mannlegs þroska getur engin námsskrá verið algerlega einstaklingsmiðuð. Börn læra með og af hverju öðru.  Að deila reynslu með öðrum á svipuðu þroskastigi er frjórra og meira auðgandi en að læra einn. Þess vegna er áherslan í Waldorf-kennslufræðinni á heila bekki með nemendur með blandaða námshæfileika. Hver kennslustund og lærdómsferli krefst jafnvægis á milli frumreynslu, félagslegra samskipta – með umræðum, hlustun, hópvinnu og svo framvegis – og þess að vinna einn. Sérhver þessara þátta er nauðsynlegur: jafnvægið fer eftir viðkomandi aðstæðum. Þannig er hjálplegt fyrir hóp 15-30 barna á sama aldri að deila námsreynslu saman í bekk.

Waldorfskólinn Sólstafir
Sóltún 6
105 Reykjavík
solstafir@waldorf.is

sími: 577-1110