Waldorfskólinn Sólstafir er sjálfstætt starfandi skóli í Reykjavík. Á hans vegum eru reknir tveir leikskólar og einn grunnskóli. Skólinn er þátttakandi í Samtökum sjálfstæðra skóla. Í skólanum er uppfyllt lögbundin skólaskylda, en þar sem hann er sjálfstætt starfandi hefur hann sveigjanleika til framsækni í kennslu og námsframboði. Lögð er áhersla á að veita fyrsta flokks menntun samkvæmt aðalnámskrá, en auk þess að leggja áherslu á persónulegan þroska hvers og eins, með því að bjóða upp á ýmiskonar viðbótarþjónustu og skapa umhverfi þar sem einstaklingurinn fær að blómstra og þroskast þannig að hann verði heilsteyptur og skapandi.