Mikjálsmessa 29. september
Lífsleiknivika Waldorfskólans Sólstafa Mikjálsmessa er 29. september ár hvert. Að fornu hófst haustvertíð á Suðurnesjum og Vesturlandi þann dag, en heyskaparlok, fjárleitir og upphaf sláturtíðar bar upp um svipað leyti. Mikjálsmessa er hátíð sem Waldorfskólar víða um lönd halda uppá og tengist hún innblæstri þess siðferðislega hugrekkis, sem goðsögnin um baráttu heilags Georgs við drekann, með aðstoð Mikjáls erkiengils, hefur haft á mannsandann í gegnum tíðina. Við siðaskipti á Íslandi var Mikjálsmessa t.d. ein þeirra messa sem áfram var leyfð af kirkju og hélt hún sess sínum langt fram eftir öldum hér á landi.Í vikunni fyrir Mikjálsmessu heldur allur skólinn af stað í lífsleikninviku. Skólinn breytist í útiskóla og ferðinni var heitið að þessu sinni í Perluhvamm við Leirvogsá.
Drekaleikurinn stendur yfir í fimm daga, á skólatíma, og taka allir nemendur, kennarar og starfsfólk skólans þátt í honum.
Lífsleiknivika, sem þessi, tekur til geysimargra þátta í félagsfærni nemenda. Þátta eins og jafnvægis, hjálpsemi og tillitssemi, trausts og umburðarlyndis. Eldri nemendur taka að sér hlutverk drekanna og bera vissa ábyrgð á leiknum. Fullorðnir og börn sameinast í leik úti í náttúrunni. Allir fylgja ströngum leikreglum sem bjóða samt uppá mikinn leikspuna og sköpun, því aldrei verða tveir drekaleikir eins. Að auki er upplagt að vinna með handverk og fornan arf þjóðarinnar á ýmsan hátt. Ekki síst felur leikurinn í sjálfum sér táknrænan sigur hinna góðu eiginleika mannsins eins og hugrekkis, dugnaðar og fórnfýsi, yfir drekum illsku, sjálfselsku og bleyðuskapar.
