Matseðillinn er svipaður frá viku til viku og birtist þar hrynjandi sem börnin fá fljótt tilfinningu fyrir.
Matseðill
Mánudagur: Hirsi- eða hrísgrjónagrautur með rúsínum, mjólk/jógúrt og kanelsykri.
Þriðjudagur: Grænmetissúpa, brauð með smjöri.
Miðvikudagur (sumar): Pastasalat með grænmeti. (Vetur): Pasta með grænmetissósu.
Eftirréttur: Jógúrt.
Fimmtudagur: Kartöflur með bráðnu smjöri, soyasósu og linsu- eða grænmetisbollu.
Föstudagur: Pitsa með hvítlauksolíu.
Meðlæti er eitt af eftirfarandi: grænmeti, olífur, döðlur, hnetur (þó ekki fyrir yngstu börnin) eða ávextir. Fallega framreitt á hliðardiski.