Kennsluformið
Sérstaða Waldorfuppeldisfræðinnar á leikskólastiginu er að hún gerir ráð fyrir því að barnið fylgi líkamlegum eðlishvötum sínum og löngunum til þess að þroskast. Hin innri hvöt þess til að standa upprétt, finna jafnvægi, hreyfa sig og læra tungumál, er bundin því fordæmi sem tengslin við hinn fullorðna skapa. Í leikskólanum er kennarinn meðvituð fyrirmynd barnsins og vinnur að hagnýtum störfum eða listrænu handverki auk umönnunar og kennslu. Með eftirhermu nærist síðan sköpunar- og viljakraftur barnsins og fær útrás í frjálsum leik. Þannig lærir barnið að tileinka sér lífshrynjandi, hegðurnarmynstur og félagsfærni sem bera það til þroska.
Upplýsingar
Leikskólinn er einsetinn og börnin eru á aldrinum 18 mánaða til 5 ára.
Opið er frá kl. 8.00-17.00 og miðað er við 8 stunda dvöl.
Skólarnir eru í fríi milli jóla og nýárs og fimm vikur á sumrin.
Waldorfleikskólinn Sólstafir
Grundarstíg 19
101 Reykjavík
grundarstigur@waldorf.is
Sími 552 1310
Waldorfleikskólinn Höfn
Marargötu 6
101 Reykjavík
marargata@waldorf.is
Sími 552 3222
