Skólinn opnar 8.15 og kennsla hefst kl. 8.45 og lýkur kl. 14.40. Boðið er upp á lengdarviðveru til kl. 16.

Hver dagur í Waldorfskólanum hefst með samsöng allra nemenda og kennara. Bekkjarkennari heilsar nemendum sínum, hverjum og einum við upphaf aðalkennslustundar. Í skólanum fléttast sterk hrynjandi inn í hverja kennslustund, viku og árstíð. Margar hátíðir setja svip sinn á skólaárið og gefa tilefni til undirbúnings og eftirvæntingar. Heimanám yngri nemenda er í lágmarki og ætlast er til þess að flestir nemendur geti lokið verkefnum dagsins innan skólatímans.