Waldorfskólinn Sólstafir – Opið hús í Sóltúni 6.
apríl 20, 2012
Laugardaginn 28. apríl frá kl.13:00-16:00.
Plöntusala.Markaður.Vöfflukaffi.Karnival dýranna.
Allir velkomnir.
Waldorfsskólinn Sólstafir sem hóf starfsemi sína fyrir rúmum áratug og flutti síðastliðið haust að Sóltúni 6 105 Reykjavík, er nú miðsvæðis í borginni. Waldorfstefnan er heildræn skólastefna sem byggir á 100 ára grunni. Upphafsmaður hennar var Austurríkismaðurinn Rudolf Steiner og eru waldorfskólar starfræktir víða um heim og fjölgar stöðugt. Skólinn í Sóltúni er sjálfstætt starfandi almennur grunnskóli og nemendurnir sem sækja hann eru á aldrinum 6-16 ára og koma af öllu höfuðborgarsvæðinu. Starfið er blómlegt, bekkjarhópar litlir og aðferðafræðin sem notuð er við kennslu miðar að því að laða fram ánægða og skapandi nemendur með frumkvæði og sjálfstæða hugsun.
