Rudolf Steiner (1861-1925) var fræðimaður á mörgum sviðum og mjög listhneigður. Hann skapaði hugmyndafræði sem kölluð hefur verið mannspeki (anthroposophy). Sýn hans á manninn byggði á meðvitund um efnislega og andlega krafta hans.

Fyrsti skólinn

Rudolf Steiner stofnaði fyrsta Waldorfskólann í Stuttgart árið 1919. Skólinn kallaðist hinn frjálsi Waldorfskóli. Þar voru  listir, tónlist og handmennt jafn mikilvægar námsgreinar og lestur, ritun og reikningur. Hver dagur bauð upp á viðfangsefni fyrir hendur, hjarta og huga og þar kenndi sami kennarinn sama hóp allan barnaskólann.
Í skólanum skipuðu siðferðilegir og félagslegir þættir veglegan sess og kennarinn var mikilvægur uppalandi. Leikskólar spruttu upp í tengslum við skólana.

Fyrsti Waldorfskólinn í Stuttgart 1919

Lífrænn arkitektúr

Sá byggingarstíll sem Rudolf Steiner stendur fyrir hefur verið kallaður lífrænn arkitektúr.  Með fáum orðum er hægt að lýsa honum á þá lund að hann hefur rætur í fortíðinni og tekur náttúruna sem sína fyrirmynd.  Ekki er verið að ljósmynda náttúruna heldur eru það hinir lífrænu ferlar vaxtar og gróanda sem hafðir eru að fyrirmynd.
Einkenni arkitektúrs Rudolf Steiners er mætingin hins ytra forms og innri starfsemi. Í leikskólum og grunnskólum er vegur barnsins til þroska mikilvægur sem fyrirmynd hönnunar.

Hugur, hjarta, hönd

Steiner talaði og ritaði mikið um þroska barnsins frá fæðingu til 7 ára aldurs og ítrekar hina miklu þýðingu sem fyrstu árin hafa í mótun barnsins. Þar væri grunnurinn lagður að velferð manneskjunnar.

Steiner vildi undirstrika mikilvægi þess að barn næði alhliða þroska sem fulltíða einstaklingur og til þess þyrfti að leggja til jafns huga, hjarta og hönd, eða hugsun, tilfinningar og viljakraft í náminu. Þetta er gert til þess að sá sköpunarkraftur sem býr innra með hverri manneskju finni sér farveg.  Skapandi starf er því samtvinnað öllu skólastarfi Waldorfskólans og er eitt megin sérkenni hans  ásamt ásamt því að hjálpa börnum til að þroska félagslega færni til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Hann taldi mikilvægt að þekkingin væri lifandi og vinnuferli þyrfti að vera jafnt huglægs, tilfinningalegs og líkamlegs eðlis. Þannig er handverkinu gert hátt undir höfði í Waldorf skólanum sem mikilvægu tæki fyrir nemandann til að þroska færni sína.

Meira á www.rudolfsteinerweb.com