Grunnur að velferð

Grunnurinn að Waldorf-uppeldisfræðinni var lagður á öðrum og þriðja áratug síðustu aldar af austurríska náttúruvísinda-manninum og heimspekingnum Rudolf Steiner. Fyrsti skólinn var stofnaður í Stuttgart árið 1919. Takmark hans var að víkka út sjóndeildarhring mannsins inn í innri veruleika sinn.  Megin áhersla uppeldisstefnu og námsskrár Waldorf leik- og grunnskólans byggir á því að ná jafnvægi milli þeirra þriggja leiða sem manneskjan tengist heiminum.  Það er í gegnum líkamlegt starf, tilfinningalífið og á hugsanasviðinu. Kennslan og uppeldisstefnan sýnir hvernig þessi þrjú atriði tengjast mannlegu eðli og hvert öðru innbyrðis.