Lögð er áhersla á að skapa sterk tengsl milli skóla og heimilis. Foreldrar fá tækifæri til að vera í tengslum við skólann í gegnum ýmis störf, meðal annars með undirbúningi og þátttöku í hinum árstíðabundnu hátíðum sem setja sinn svip á skólann og með þátttöku í foreldrafélaginu.
Skólinn er samastaður barnanna daglangt og með góðri samvinnu höldumst við í hendur við að skapa börnum okkar öruggt og hlýlegt umhverfi þar sem fólk þekkist og vinnur saman.
