Waldorfskólinn Sólstafir í Reykjavík hefur vaxið úr einni bekkjardeild sex og sjö ára barna árið 1994, í lítinn grunnskóla, sem kennir nú samkennslu í fjórum bekkjardeildum. Skólaárið 2007-2008 eru 54 nemendur í skólanum. Nemendur skólans koma hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu og strætisvagnasamgöngur ganga vel og fljótlega fyrir sig.
Bekkjardeildirnar skiptast þannig:
- 1- 2 og 3. bekkur
- 4-5. bekkur
- 6- 7 og 8. bekkur
- 9- 10. bekkur
Í starfi skólans er byggt upp námsferli sem styðst við aðalnámsskrá grunnskóla og nýtir sér framvindu og uppeldisfræðilegan margbreytileika Waldorf-stefnunnar.
Kennarar og starfsmenn skólans gera sér far um að skapa hlý, persónuleg tengsl við alla nemendur. Umsjónarkennarar bekkjanna snæða með nemendum sínum í hádeginu og fylgja eftir dagshrynjanda og sjá um að umgengnis- og skólareglum sé fylgt.