Skólinn flytur í Sóltún
Waldorfskólinn Sólstafir fékk úthlutað lóð að Sóltúni 6 árið 2006. Þar hefur starfsfólk, foreldrar og nemendur Waldorfskólans ásamt Sigríði Sigurþórsdóttir arkítekt unnið saman að hönnun á nýjum skólahúsnæði fyrir Waldorfgrunn- og leikskóla á lóðinni. Waldorfskólinn mun hefja starfsemi í færanlegum kennslustofum uns kemur að byggingu fyrsta áfanga nýja skólans.
Nú er loks komið að flutningum og á næstunni verða skólastofurnar í Hraunbergi fluttar á nýja staðinn og bætt verður við fleiri stofum. Skólastarf hefst á hefðbundnum tíma í ágúst.
Staðsetning skólans er afar góð nýja húsnæðið er í einungis 5 mínútna akstursfjarlægð frá leikskólum á Grundarstíg og Marargötu. Strætisvagnasamgöngur eru góðar og stutt í gott útivistarsvæði í Laugardal og víðar.
Þetta er stór og langþráður áfangi fyrir skólann okkar og við höldum ótrauð áfram að byggja upp framsækið og mannbætandi skólastarf í Sóltúni 6.
Nýir nemendur eru boðnir velkomnir í skólann. Hafið samband ef þið óskið eftir nánari upplýsingum um skólann.