Í liðinni viku sótti starfsfólk Waldorfsskólans Sólstafa og leikskólanna við Marargötu og Grundarstíg tveggja daga námskeið í grænum skógarnytjum. Þar fengu þau þjálfun í að vinna með ferskt garð- og skógarefni sem nýta má í skólastarfi og nálgast má í nærumhverfi skólanna. Unnið var með greinar og gróður og því breytt í alls konar hluti sem nemendur á öllum skólastigum geta haft gaman af.

Markmið Waldorfskólanna er að nýta sem allra best það efni sem finnst í nærumhverfinu og tengja það fræðslu um náttúru og umhverfisvernd. Skólarnir hyggjast sækja um aðgang að grenndarskógi eða grenndargörðum sem nýst geta í þessum tilgangi.

Þetta námskeið var byrjun á samstarfi skólanna við LÍS- verkefnið (lesið í skóginn) sem tengir saman Umhverfissvið og Menntasvið í þessum tilgangi. Leiðbeinandi var Ólafur Oddsson verkefnisstjóri LÍS