Í næstu viku förum við í drekaleikinn.  Þá  förum með rútu hvern morgun og keyrum upp að Leirvogsá. Þar söfnumst við saman í hring og syngjum drekasöngva sem eru tengdir dýrlingnum Mikael. Þegar við höfum sungið halda kennarar með sinn bekk í vinnu. Nú er áherslan lögð á að byggja sér hús og hver bekkur byggir sér hús með eldstæði inni í húsinu. Í nágrenni þorpsins búa drekar í drekaskógi, þeir eru hættulegir íbúum þorpsins og hafa drekar leyfi til að taka íbúa sem ekki halda sig að vinnu eða eru að syngja söngva. Íbúar eru óhultir fyrir drekum ef þeir syngja drekasöngva og haldast í hendur þrír að lágmarki eða eru að vinna. Vinnan getur verið fólgin í því að byggja hús, vefa, lita lopa, tálga, hjálpa til við matreiðslu á hlóðum eða að sækja eldivið. Ef dreki nær í íbúa í þorpinu er hann tekinn og farið með hann í drekaskóg. Þar þarf hann að dúsa þar til engill kemur og nær í hann, engillinn fer með fangann og lætur hann læra gagnlegan hlut, s.s. margföldunartöfluna, enskar sagnir eða annað sem engillinn telur að fanginn þurfi að ná betri tökum  Leiknum lýkur á föstudag þegar íbúar hafa náð að vinna sigur á drekunum. Þá er haldin hátíð og er foreldrum þá boðið að koma í mat til okkar.